Hæhæ og velkomin á heimasíðuna okkar!

Við heitum Bjartmar Logi Og Ísey Rós!



Ég heiti Bjartmar Logi Steingrímsson og ég er rosa sætur strákur! Mamma mín heitir Máney Mjöll Sverrisdóttir og pabbi minn Steingrímur Páll Hreiðarsson! Ég fæddist þann 1.júlí 2004 á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri! Ég var 17 merkur og fyrsta barn mömmu og pabba! Það var soldið erfitt að koma mér í heiminn því ég var svo stór en það gekk samt eðlilega fyrir sig! Mamma og pabbi voru svo ánægð að fá loksins að sjá mig en það var fyrst sagt að ég ætti að koma í heiminn 7.júní en svo var mér seinkað alveg til 26.júní en ég átti svo bara að koma þarna inn á milli en ég kom sko ekki neitt fyrr en 1.júlí og svona líka mikið krútt! ;) Mér fannst bara svo hlýtt og notalegt inni í henni mömmu minni að mér lá barasta ekkert á að koma út, það var nú samt orðið dáldið mikið þröngt um mig....

Þann 10.10.2006 kl.22:50 kom svo yndislegt lítið stúlkubarn í heiminn! Og ég semsé orðinn stóri bróðir!
Litla dúllan Ísey Rós fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupsstað öllum til mikillar ánægju! Ljósmóðirin heitir Anna Sigríður og er frá Reykjavík! Hún var yndisleg! Litla systir vó 4100gr. og var 52cm á lengd! Svo ótrúlega slétt og falleg!!! Og hún fór beint á brjóst og tók það alveg fullkomlega! Rosa falleg og dugleg stelpa! En við systkinin búum hjá mömmu á Egilsstöðum! Gjörið svo vel og skoðið fínu síðuna okkar!





ELSKU HJARTANS ÍSEY RÓS Á 4 ÁRA AFMÆLI Í DAG!!! 10.10.'10. INNILEGA TIL HAMINGJU ELSKU BESTA MÖMMUSTELPA!!! ENDALAUSIR KOSSAR OG KNÚS!!!

Af gefnu tilefni viljum við benda á að nýjar myndir í albúminu koma alltaf neðar, sko elstu myndirnar eru efst á skjánum, það þarf að fletta neðst til að sjá nýjustu! STÓRT KNÚS!

ENDILEGA SKRIFIÐ Í GESTABÓKINA OKKAR!!!


Það eru vandræði með að koma inn myndum á síðuna í réttri stærð! Þær eru leiðinlega litlar, þurftum að fá okkur aðra tölvu...